Thursday, June 23, 2011

5 vikur

Eftir nákvæmlega 5 vikur verð ég staddur á JFK flugvellinum í New York. Ég hef verið að vinna á fullu og gera fjarnám í skólanum þess á milli. Ég á eftir að vinna 10 skipti í viðbót og svo tekur við full vinna að pakka og kaupa gjafir. Ég mun svo þurfa að kveðja alla og þess háttar. Það eru sem sagt líka bara 5 helgar eftir og þær nánast fullbókaðar haha.

Fjölskyldan mín úti hefur haft það smá erfitt þessa vikuna, því að amman lést á sunnudaginn síðasta :'( . Ég hef verið að sko myndir af þeim og húsinu þeirra á orkut, sem btw er "facebook" brasilíumanna. Húsið er risastórt og er með einhverjum flottutu svölum sem ég hef séð á ævinni. Á myndunum að dæma var ekki að sjá að það væri parket í húsinu. Þegar ég fékk fjölskyldu umsóknina senda til mín, stóð að ég myndi fá eigið herbergi og ekki hægt að segja að þú væntist til mikils af mér varðandi þrif ( Líklega er það bara best hahah) . Einnig frétti ég að þau hefðu farið til USA og Möltu sem gefur ágætis merki um að þau séu efnuð.

Ég hef komist í samband við trúnaðarmanninn minn ( samt er hún kona :) ) og hún heitir luiza. Hún er rosalega góð og virkar fær í sinni vinnu. Einnig hef ég komist í samband við yfirmann skiptinemamála í Vitória, hann heitir Carlos og er allveg frábær gaur. Þau sögðu mér bæði að þegar við lendum í Vitória, taka þau á móti okkur og fara með okkur í sumarbústað. Í sumarbústaðnum verður svokallað komunámskeið, þar sem allir skiptinemarnir í vitória verða saman komnir. Þau eru frá Belgíu, Noregi, Ítalíu, Tyrklandi og Japan ef ég man rétt.

Til að byrja með var þetta blogg gert til að láta vita að ég væri búinn að laga síðuna þannig hver sem er getur kommentað :D Núna hafið þið enga afsökun fyrir því að kommenta ekki  ! Ég VILL fá komment ef þessi síða á að lifa.

Fróðleiksmoli dagsins: Vissir þú að Brasilía er 5 stærsta landið í heiminum ?

Takk fyrir mig og KOMMENT KOMMENT KOMMENT,
Kveðja, Brazilfarinn

Thursday, June 16, 2011

Ferðaáætlun

Jæja góðan  daginn.

Í gær fékk ég í hendurnar bækling um Brasilíu og fullt af upplýsingum um hvernig á að sækja um vegabréfsáritun. Þetta er rosalegt ferli og best að fara að vinna í því sem fyrst.

Einnig fékk ég flugplanið mitt í hendurnar í gær og það hljómar nú bara ansi vel. Ég flýg út 10:30 frá Keflavík 28.Júlí og lendi 12:30 í New York á staðartíma. Í New York tekur svo við rúmlega 9 tíma bið, eins skemmtilega og það hljómar. Frá New York legg ég af stað 21:45 á staðartíma og verð mættur 8:25 á flugvöllinn í Sao Paulo í Brasilíu á staðartíma. Síðan veit ég ekki hvað tekur við frá Sao Paulo, hvort ég keyri eða fljúgi. En sem sagt er það heill sólarhringur sem líður frá því að ég yfirgef Dofrakórinn og þangað til ég verð kominn til Sao Paulo.

Að öðru, í gærkvöldi fór ég í Esjugöngu með skiptinemunum. Mikið fjör þar á ferð. Löggðum af stað 22:00 og vorum komin heim um 02:30 í nótt. Það var fínt veður og ég tók nokkrar myndir til að sýna fólkinu úti útsýnið af Esjunni.

Í dag eru 6 vikur í brottfaradag. Ég vill biðja fólk sem les þetta að commenta :D Til að ég kenni smá á þessa síðu, þá þarf að klikka á fyrirsögnina á blogginu í þessu tilfeli "Ferðaáætlun" og þá kemur upp hvítur gluggi sem hægt er að commenta í. S.S það þarf ekki að vera með aðgang að blogspot til að commenta.

Fróðleiksmoli dagsins: Vissir þú að i Brasilíu er töluð Portúgalska, en í öllum hinum löndum Suður Ameríku er töluð spænska.

Wednesday, June 8, 2011

Fjölskyldan

Góða Kvöldið,
Ég ætla að hafa þetta stutt og hafa smá kynningu á fjölskyldunni minni þarna úti.
Mamman heitir Delzimar Oggioni og hún er fædd 1965
Pabbinn heitir Luiz Carlos Oggioni og er fæddur 1963
Strákarnir heita Murilo og Giovanni og eru fæddir 1994 og 1989.

Mamman talar litla sem enga ensku og Murilo aðeins meiri, samt mjög takmarkaða.

 Þau búa allveg við ströndina, Giovanni er að læra viðskipti, Murilo er í einkaskóla og mamma og pabbi eru bæði komin á eftirlaun. Lýst rosa vel á þetta fólk og held að mér muni líða vel hjá þeim.

Ætla að bæta inn skemmtilegum lið sem heitr fróðleiksmolinn og gengur hann útá það að ég bæti smá fróðleik um Brazilíu inn.

Vissir þú að fótboltagoðsögnin Pelé er frá Brazilíu ?

Kveðja brazilfarinn

Tuesday, June 7, 2011

Fyrsta blogg

Rétt til að byrja þessa síðu af fullu þá ákvað ég að henda inn smá bloggi.

Ég heiti sem sagt Brynjar Sigurðsson og mun halda á vit ævintýrana til Brazilíu 29. júlí næstkomandi.
Ég mun búa í borg sem heitir Vitória og er staðsett í espirito santo fylki. Í borginni búa um það bil 360.000 manns, sem sagt "smáborg "

Vona að fólk muni commenta á þetta og lesa, til að fylgjast með þessu ævintýri með mér.

Kveðja Brazilfarinn