Thursday, June 16, 2011

Ferðaáætlun

Jæja góðan  daginn.

Í gær fékk ég í hendurnar bækling um Brasilíu og fullt af upplýsingum um hvernig á að sækja um vegabréfsáritun. Þetta er rosalegt ferli og best að fara að vinna í því sem fyrst.

Einnig fékk ég flugplanið mitt í hendurnar í gær og það hljómar nú bara ansi vel. Ég flýg út 10:30 frá Keflavík 28.Júlí og lendi 12:30 í New York á staðartíma. Í New York tekur svo við rúmlega 9 tíma bið, eins skemmtilega og það hljómar. Frá New York legg ég af stað 21:45 á staðartíma og verð mættur 8:25 á flugvöllinn í Sao Paulo í Brasilíu á staðartíma. Síðan veit ég ekki hvað tekur við frá Sao Paulo, hvort ég keyri eða fljúgi. En sem sagt er það heill sólarhringur sem líður frá því að ég yfirgef Dofrakórinn og þangað til ég verð kominn til Sao Paulo.

Að öðru, í gærkvöldi fór ég í Esjugöngu með skiptinemunum. Mikið fjör þar á ferð. Löggðum af stað 22:00 og vorum komin heim um 02:30 í nótt. Það var fínt veður og ég tók nokkrar myndir til að sýna fólkinu úti útsýnið af Esjunni.

Í dag eru 6 vikur í brottfaradag. Ég vill biðja fólk sem les þetta að commenta :D Til að ég kenni smá á þessa síðu, þá þarf að klikka á fyrirsögnina á blogginu í þessu tilfeli "Ferðaáætlun" og þá kemur upp hvítur gluggi sem hægt er að commenta í. S.S það þarf ekki að vera með aðgang að blogspot til að commenta.

Fróðleiksmoli dagsins: Vissir þú að i Brasilíu er töluð Portúgalska, en í öllum hinum löndum Suður Ameríku er töluð spænska.

1 comment:

  1. Heyrðu snilld! samt frekar ósátt með að hafa misst af þessari Esjugöngu ..
    Engar upplýsingar um vegabréfsáritanir komnar hjá okkur enn en vá farið að styttast í þetta hjá þér Brynjar :D
    Hlakka til að heyra meira!

    Natalia

    ReplyDelete