Góða kvöldið kæra fólk :D
Jæja nú hef ég frá einhverju smá að segja. Eftir rúmelga 17 daga þá verð ég á leiðinni til Vitória og spennigurinn er í hámarki. Ég hef verið að vinna í sumar í bæjarvinnu kópavogs og á bara 2 vinnudaga eftir sem betur fer. Síðastliðna viku hef ég verið að spá hvað ég eigi að taka út og hvað ég eigi að gefa fólkinu þarna úti.
Í dag lennti ég svo á spjalli við "mömmu" mína þarna úti, og var að spurja að ýmsu merkilegu, t.d hvort þau væru með þernu á heimilinu og svo er, hún mætir alla virka daga og þrýfur húsið, ekki leiðinlegt það ! Einnig bombaði mamma mín því á mig að húsið væri 250 fermetrar og að það væri bílageymsla fyrir 3 bíla ef ég skyldi hana rétt með bílageymsluna. Svo fór ég og spurði hana hvort þeim þætti gaman að ferðast og fékk óbeint svar að við myndum fara í 5 daga ferð til Porto Alegre sem er svona tæpum 20 klst frá Vitória með bíl eftir því sem leitarvélin google segir mér.
Þessir Brazzar eru algjörir fagmenn, skylst að það séu frekar mikið um einhverja tónleika / hátíðir í borginni minni og það sé djamm um hverja helgi á sumrin hjá þeim. Einnig rak ég augun í eitt mjög merkilegt og væri ég alls ekkert að hata ef það gerist að sjálfur David Guetta komi og spili í borginni minni, en veit ekki hvort það er satt.
Fróðleiksmolinn er á sínum stað : vissir þú að 25 % af öllum regnskógum heims eru í Brasilíu ?
AÐ LOKUM COMMENTA !!!! nú er endanlega búið að ganga frá comment málum. Klikkið á titil bloggsins, þá opnast bloggið aftur og fyrir neðan bloggið er hvítur gluggi, skrifið í hann. Farið svo í litla gluggan fyrir ofan hvíta gluggann og breytið úr anymous... yfir í Name/Url og skrifið nafnið ykkar í name og þá á bara eftir að ýta á post comment og þá er það komið, mun ekki halda þessari síðu áfram nema að ég fái comment.
Kveðja,
Brazilfarinn
þessi þerna mjög hljómar vel... og mæli með lava candles í nordic store fyrir family ýkt töffff dæmi!.. ps. takk fyrir fróðleiksmolann
ReplyDeleteþrýfur húsið - stafsetningarvilla .. en þið strákar kunnið hvort eð er ekki á þetta orð ;-)
ReplyDeleteskemmtu þér annars og þín verður sárt saknað á íslandinu
btw splæstu í the big book of penises!
ReplyDeleteHaha vá mer fannst fróðleiksmolinn geðveikt merkilegur!!
ReplyDeleteÓ vá, nú langar mig að fara sem skiptinemi haha. Er geðveikt spennt fyrir þína hönd, hljómar allt svo vel! Átt eftir að skemmta þér æðislega þarna úti!
ReplyDelete*lenti ég svo á spjalli haha bara því það er byrjað að hjálpa þér með stafsetningareglurnar, hélt þú værir í versló!
ReplyDeleteen þetta hljómar alveg hrikalega vel og ég er orðin spennt fyrir þína hönd :D
ég þekki þig ekki neitt en mig langaði að spyrja þig hvort Brasilía hafi verið landið sem þú settir í efsta sæti?
ReplyDeletejá :D hver er, mig langar mikið að vita hverjir eru að lesa bloggið
ReplyDeleteÉg heiti Ásgeir, ég þekki þig ekki neitt og þú þekkir mig heldur ekkert.
ReplyDeleteþeeigiðu bryjar
ReplyDelete