Thursday, June 23, 2011

5 vikur

Eftir nákvæmlega 5 vikur verð ég staddur á JFK flugvellinum í New York. Ég hef verið að vinna á fullu og gera fjarnám í skólanum þess á milli. Ég á eftir að vinna 10 skipti í viðbót og svo tekur við full vinna að pakka og kaupa gjafir. Ég mun svo þurfa að kveðja alla og þess háttar. Það eru sem sagt líka bara 5 helgar eftir og þær nánast fullbókaðar haha.

Fjölskyldan mín úti hefur haft það smá erfitt þessa vikuna, því að amman lést á sunnudaginn síðasta :'( . Ég hef verið að sko myndir af þeim og húsinu þeirra á orkut, sem btw er "facebook" brasilíumanna. Húsið er risastórt og er með einhverjum flottutu svölum sem ég hef séð á ævinni. Á myndunum að dæma var ekki að sjá að það væri parket í húsinu. Þegar ég fékk fjölskyldu umsóknina senda til mín, stóð að ég myndi fá eigið herbergi og ekki hægt að segja að þú væntist til mikils af mér varðandi þrif ( Líklega er það bara best hahah) . Einnig frétti ég að þau hefðu farið til USA og Möltu sem gefur ágætis merki um að þau séu efnuð.

Ég hef komist í samband við trúnaðarmanninn minn ( samt er hún kona :) ) og hún heitir luiza. Hún er rosalega góð og virkar fær í sinni vinnu. Einnig hef ég komist í samband við yfirmann skiptinemamála í Vitória, hann heitir Carlos og er allveg frábær gaur. Þau sögðu mér bæði að þegar við lendum í Vitória, taka þau á móti okkur og fara með okkur í sumarbústað. Í sumarbústaðnum verður svokallað komunámskeið, þar sem allir skiptinemarnir í vitória verða saman komnir. Þau eru frá Belgíu, Noregi, Ítalíu, Tyrklandi og Japan ef ég man rétt.

Til að byrja með var þetta blogg gert til að láta vita að ég væri búinn að laga síðuna þannig hver sem er getur kommentað :D Núna hafið þið enga afsökun fyrir því að kommenta ekki  ! Ég VILL fá komment ef þessi síða á að lifa.

Fróðleiksmoli dagsins: Vissir þú að Brasilía er 5 stærsta landið í heiminum ?

Takk fyrir mig og KOMMENT KOMMENT KOMMENT,
Kveðja, Brazilfarinn

5 comments:

  1. Öfunda þig ekkert smá mikið að vera að fara ! gangi þér vel og það verður gaman að fylgjast með þessari síðu :)

    ReplyDelete
  2. Þegar þú lýsir þessu þá sér maður eftir að hafa ekki farið einhvert sem skiptinemi núna í haust.. hehe :)

    ReplyDelete
  3. hlakka til þess að fylgjast með bloggunum þínum á meðan þú ert úti :). Þetta verður algjört æfintýri!

    ReplyDelete
  4. Úhú þetta verður frábært! Mátt alveg kíkja í heimsókn til Argentínu anytime :)

    ReplyDelete
  5. Mjög spennandi Brynjar! :-) öfunda þig ekkert smá!

    ReplyDelete